|
Article on other languages:
|
Stubbur á Wikipedia er grein á frumstigi sem nær ekki að gera umfjöllunarefni sínu næg skil. Oftast er stubbur ein málsgrein eða minna, þó engin takmörk séu fyrir lengd stubbs svo lengi sem hann gerir efninu ekki almennileg skil. Þegar grein sem talist getur stubbur er bætt við á Wikipedia, ætti alltaf að bæta textanum Með því að merkja greinar sem óflokkaða stubba er notendum Wikipedia gefin vísbending um að gagnlegt væri að bæta við viðkomandi grein. Eins og sést í skýringartextanum sem birtist á síðum sem merktar hafa verið sem stubbar er þó enn betra að merkja hana með stubba-undirflokki sem gefur mun betri upplýsingar fyrir þá sem vilja bæta við hana síðar. Dæmi um undirflokka eru Ef þú telur að nýjan stubbaflokk vanti svo hægt sé að flokka ákveðnar greinar getur þú búið til nýtt sniðmát og bætt því við stubbasniðið. Ef þú treystir þér ekki til þess að bæta því við, láttu þá vita af því í Pottinum, og þá getur einhver með meiri tæknireynslu búið það til. Ekki allir greinahöfundar merkja greinar sem stubba þótt að þeir ættu að gera það. Hægt er að fara á Special:Shortpages til að sjá stystu greinarnar á Wikipedia. Hægt er að aðstoða með því að bæta við þær greinar, eða með því að merkja þær sem stubba (og helst að nota tilsvarandi stubba-undirflokk). |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.
Mercedes Car
This site monitored by SitePinger.net