Veffang

Article on other languages:

del.icio.us del.icio.us
Digg Digg
Furl Furl
Reddit Reddit
Rojo Rojo
Add to OnlyWire

Veffang (e. Universal Resource Locator (URL)) er í það sem í daglegu tali er einnig kallað slóð á heimasíðu.[1]

Dæmi um hvernig slóð er brotin niður:

   http://notandi:lykilorð@tildaem.is:992/farartaeki/bifreid?tegund=4dyra#framhluti
   \___/  \_______________/\_________/\__/\_________________/\___________/\_______/
     |            |            |        |          |               |          |
samskiptamáti innskráning    hýsill   port        slóð        fyrirspurn  tengill/brot

Flestir nota þó aðeins lítinn hluta af svona slóð við að heimsækja vefsíður á netinu, t.d. bara samskiptamáta- og hýsils-hlutana (e. host).

Dæmi um innslátt í vafra:

http://tildaem.is

Samskiptamáti: Þegar verið er að skoða heimasíður er notast við HTTP-samskiptamátann (HyperText Transfer Protocol), þegar verið er að vinna með skrár er notast við FTP-samskiptamátann (File Transfer Protocol) og jafnvel SFTP (Secure FTP). Þetta er þó ekki algild regla, svo dæmi sé tekið er http-samskiptamátinn oft notaður til skráarflutninga. Til eru fleiri staðlaðir samskiptamátar, t.d. https.

Innskráning (e. login) er ekki mikið notuð á þann hátt sem hér birtist þar sem flestir vilja ekki að lykilorðið birtist í tengistrengnum.

Hýsill (e. host) getur verið auðkenndur með IP-fangi (e. IP-Address) eða hýsilsnafni (e. host name). Hýsilsnafnið skiptist í tvo hluta: lén og rótarlén. Í dæminu að ofan er lénið "tildaem" og rótarlénið "is". Sérstakar skrifstofur sjá um úthlutun léna og stjórnar oft ein skrifstofa einu rótarléni. Á Íslandi er það ISNIC sem stjórnar úthlutun léna innan .is rótarlénsins. Rótarlénum er svo úthlutað af IANA (Internet Assigned Numbers Authority).

Port-hlutinn segir til um á hvaða porti skuli reyna að tengjast. HTTP-staðallinn notar port 80 og er það því sjálfgefna gildið sleppi notandi að slá port-númer inn.

Slóðin segir til um hvar á viðkomandi hýsli skuli sækja gögn og jafnframt hvaða gögn.

Fyrirspurnar-hlutinn segir til um skilyrði sem gögnin skulu uppfylla.

Sé slóðar- og fyrirspurnar-hlutunum sleppt er náð í sjálfgefna síðu, sem skilgreind er af hýsli.

Tengill/brot segir til um hvar á síðunni eigi að byrja að birta gögnin.

Tilvísanir

  1. Á ensku web address.

Heimild

This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.


Giant Panda

Mercedes Car
James Bond Guide
This site monitored by SitePinger.net