|
UTC eða samræmdur alþjóðlegur tími er tímakvarði sem er eins og GMT að öðru leyti en því að UTC byggir á tímamælingu með atómklukku, þar sem GMT á hinn bóginn reiknar tímann með stjarnfræðilegum hætti. Þegar nauðsyn krefur er skotið inn aukasekúndu(m) í lok mánaðar og verður klukkan þá 23:59:60 (og áfram ef þörf krefur) áður en hún verður 00:00:00. Þessi leiðrétting stafar af því að snúningur jarðar verður í sífellu hægari og lengjast því GMT-sekúndur stöðugt, en atómklukkusekúndur eru óbreytilegar. Skammstöfunin UTC er alþjóðleg og var hugsuð sem málamiðlun á milli frönsku (Temps universel coordonné, TUC) og ensku (Coordinated Universal Time, CUT). Tímabelti jarðar eru skilgreind sem já- og neikvæð hliðrun frá UTC. |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.
Mercedes Car
This site monitored by SitePinger.net