Sonnetta

Article on other languages:

del.icio.us del.icio.us
Digg Digg
Furl Furl
Reddit Reddit
Rojo Rojo
Add to OnlyWire

Sonnetta er ítalskur bragarháttur sem var mótaður á 13. öld. Stundum hefur sonnettan verið kölluð sónháttur eða sónhenda á íslensku.

Sonnettan er fjórtán ljóðlínur sem hver um sig er oftast fimm jambar. Ítalska sonnettan, sem kennd er við Petrarca, er í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn er átthenda (eða tvær ferhendur), þar sem saman ríma fyrsta, fjórða, fimmta og áttunda lína, og með öðru rími önnur, þriðja, sjötta og sjöunda lína; eða eins og þetta er einatt táknað: abba, abba. Síðari hlutinn er sexhenda (eða tvær þríhendur), og þar ríma saman fyrsta og fjórða lína, önnur og fimmta, og þriðja og sjötta lína, eða: cde, cde. Þó getur rímröð sexhendunnar verið með öðru móti, t.d.: ccd, eed. Í Ítölsku sonnettunni kemur einatt amfíbrakki í stað síðasta jamba línunnar, sem þá verður kvenlína, og hrynjandin eins og:

Þau Jón /og Gunn-/ a gift-/ a sig / á morgun.

vS------/vS------/vS------/vS------/vSv/

En bæði á íslensku og öðrum málum er allur gangur á því. Fyrsta íslenska Petrarca-sonnettan, og um leið sú frægasta, er ljóð Jónasar Hallgrímssonar:


Ég bið að heilsa

Nú andar suðrið sæla vindum þýðum,
á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi Ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.

Ó! heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði;
kyssi þið, bárur! bát á fiskimiði,
blási þið, vindar! hlýtt á kinnum fríðum.

Vorboðinn ljúfi! fuglinn trúr sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín!

Heilsaðu einkum ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu;
þröstur minn góður! það er stúlkan mín.


Í átthendunni víkur Jónas frá ítalska forminu með því að ríma: abba, acca, rísa, ísa, hlíðum, blíðum, friði, miði, fríðum.

Tenglar

This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.


Giant Panda

Mercedes Car
James Bond Guide
This site monitored by SitePinger.net