|
Article in other languages:
|
Reikistjarna (jarðstjarna eða pláneta) er heiti yfir tiltölulega stórt, hnöttótt geimfyrirbæri á sporbaug um sólstjörnu, sem er þó ekki stjarna sjálft. Reikistjörnurnar í okkar sólkerfi eru átta stærstu fylgihnettir sólar: Merkúr, Venus, jörðina, Mars, Júpíter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus frá sólu talið. Hugtakið „reikistjarna“ hafði enga nákvæma vísindalega skilgreiningu fyrr en árið 2006 og var umdeilt fram að því. Flestar voru reikistjörnurnar taldar níu frá árinu 1930, en Alþjóðasamband stjarnfræðinga ákvað 24. ágúst 2006 skilgreiningu á reikistjörnum, sem fól það í sér að Plútó telst ekki lengur reikistjarna, heldur dvergreikistjarna. Gliese 581 c er reikistjarna utan sólkerfisins í um 20 ljósára fjarlægð frá jörðu og sýnist lífvænleg.
Samsett mynd af sólinni ásamt reikistjörnunum (skv. Alþjóðasambandi stjarnfræðinga) sem um hana ganga, í réttum stærðarhlutföllum:
1. Merkúríus 2. Venus 3. Jörðin 4. Mars 5. Júpíter 6. Satúrnus 7. Úranus 8. Neptúnus
Nafnsifjar orðsins „reikistjarna“
Orðið reikistjarna er stundum ekki notað sem algjört samheiti plánetu (e. planet):
Í dag er orðið „planet“ í ensku venjulega ekki notað um sólstjörnur eða hnetti sem hafa ekki sporbaug um sólstjörnu. Þ.a.l. myndi enginn telja tunglið eða sólina til plánetu í dag. Nafnsifjar orðsins „pláneta“Orðið pláneta er ættað af gríska orðinu πλανήτης (umritað: planētēs) sem þýðir flakkari. Tengt efniHeimildir
Tengill
Questions for article: á wikiorðabókinni |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.
IHS Europe: Infrared Heating Systems for Home and Business.