|
Article in other languages:
|
Rafbassi eða bassagítar er rafmagnsstrengjahljóðfæri. Rafmagnsbassi hefur oftast 4 strengi en 5 og 6 strengja rafbassar eru ekki sjaldséðir. Oftast eru strengir á rafmagnsbassa stilltir í E, A, D og G (áttund neðar en fjórir dýpstu strengir gítars) en margir bassaleikarar kjósa að að stilla bassann sinn öðruvísi. Rafbassar eru yfirleitt með þverböndum þó bandalausir rafbassar séu einnig til. Á búki rafbassa eru hljóðnemar sem gerðir eru úr seglum sem nema titring strengjanna þegar slegið er á þá. Utan um seglanna er vafin spóla sem umbreytir hreyfiorku seglanna í rafstraum. Snúra er tengd frá rafbassa yfir í magnara sem magnar upp rafmerkið. Questions for article: |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.
IHS Europe: Infrared Heating Systems for Home and Business.