|
Article on other languages:
|
Samveldið Púertó Ríkó er sérstakt sambandssvæði Bandaríkjanna, staðsett austan við Dóminíska lýðveldið í norðausturhluta Karíbahafs. Eyjan er minnst Stóru-Antillaeyja en svæðið telur einnig minni eyjar og rif, þar á meðal Mona, Vieques og Culebra. Eyjan er um það bil 1/11 af Íslandi að flatarmáli en íbúafjöldinn er meira en tífaldur fjöldi Íslendinga. Þéttleiki byggðar er því um 120 faldur þéttleiki byggðar á Íslandi.
Púertó Ríkó hefur áheyrnarfulltrúa á bandaríska þinginu.
Sjálfstæðisflokkur Púertó Ríkó hefur barist fyrir sjálfstæði svæðisins.
|