|
Article on other languages:
|
Hugbúnaðarverkfræði snýst um að búa til hugbúnað og viðhalda honum. Allar nánari skilgreingar eru umdeildar, en hér eru nokkrar þeirra:
Munurinn á hugbúnaðarverkfræði og tölvunarfræðiÍ atvinnulífinu er yfirleitt ekki gerður greinamunur á starfssviði hugbúnaðarverkfræðinga og tölvunarfræðinga og það er ekki mikill munur á náminu. Tölvunarfræði sem fræðigrein snýst um hvernig er hægt að leysa tiltekið vandamál með hjálp tölvu en hugbúnaðarverkfræði sem fræðigrein snýst um hvernig á að standa að hugbúnaðarþróun til að framleiða góðan hugbúnað á sem hagkvæmastan hátt. Þó að verklag við hugbúnaðarþróun geti verið frekar óskipulagt, þá er samt þörf á rannsóknum á því hvernig hægt er að bæta verklagið, t.d. hvort ein aðferð henti betur en önnur. Nám á ÍslandiHugbúnaðarverkfræði er kennd á Íslandi bæði við Háskóla Íslands (frá 2001) og Háskóla Reykjavíkur (frá 2006). Hvað er kennt?Það getur verið erfitt að skilgreina muninn á hugbúnaðarverkfræðingum og tölvunarfræðingum. Á Íslandi læra nemar í hugbúnaðarverkfræði að beita öguðum aðferðum á úrlausnarverkefni. Þessar aðferðir eru frá greinum stærðfræði (stærðfræðigreining, tölfræði, línuleg algebra), stjórnunar og reksturs (hagverkfræði, rekstrarfræði, verkefnastjórnun), gæðastjórnunar (hugbúnaðarprófanir, iðnaðartölfræði) og síðast en ekki síst tölvunarfræði (þróun hugbúnaðar, forritunarmál, almenn tölvunarfræði, uppbygging tölvunnar og stýrikerfa, netafræði og reiknirit). Kröfur til þess að vera hugbúnaðarverkfræðingurHugbúnaðarverkfræðingur getur sá kallað sig sem hefur fengið það samþykkt frá Verkfræðingafélagi Íslands. Til þess þarf að vera með mastersgráðu í hugbúnaðarverkfræði. Mastersnám tekur 2 ár, en fyrst þarf að ljúka B.S. námi sem tekur 3 ár. Tenglar |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.
Mercedes Car
This site monitored by SitePinger.net