Poll without page-refresh
Hið sameinaða konungsríki Stóra-Bretlands og Norður-Írlands (enska United Kingdom of Great Britain and Northern Ireland ) oftast þekkt á Íslandi sem Bretland eða Stóra Bretland er land í vestur Evrópu . Landið nær yfir megnið af Bretlandseyjum fyrir utan Ermarsundseyjar , Mön og megnið af Írlandi . Bretland skiptist í England , Wales , Skotland og Norður-Írland . Fyrir utan landamæri Norður-Írland og Írska lýðveldisins er Bretland er umkringt af Atlantshafi , Norðursjó , Ermarsundi og Írlandshafi . Ermarsundsgöngin tengja Bretland og Frakkland .
Á íslensku hefur skapast sú venja að tala um Bretland sem ríkið en Stóra-Bretland sem eyjuna þar sem England, Skotland og Wales eru. Hafa ber í huga að sú nafngift getur verið ruglandi þar sem ríkið nær einnig yfir Norður-Írland sem er ekki partur af Stóra Bretlandi.
Í Bretland er þingræði og þingbundin konungsstjórn og Elísabet II er þjóðhöfðinginn . Ermarsundseyjarnar og Mön eru svokallaðar krúnunýlendur og eru ekki hluti af Bretlandi þrátt fyrir að vera í konungssambandi með því. Bretland ræður yfir fjórtán hjálendum sem allar voru hluti af breska heimsveldinu . Það var það stærsta sem sagan hefur kynnst og náði hátindi á Viktoríutímanum seinni hluta 19. aldar og fyrri hluta 20. aldar .
Tenglar