|
Article on other languages:
|
Barbados er eyríki á mörkum Karíbahafs og Atlantshafs, austast Litlu-Antillaeyja. Næstu nágrannaríki eru Sankti Vinsent og Grenadíneyjar og Sankti Lúsía í vesturátt. Barbados er 434,5 km norðaustur af strönd Venesúela.
Eyjan er 430 km² að flatarmáli og er aðallega mynduð úr kóral og kalksteini. Hún er láglend en nokkuð hæðótt inni við miðju. Staðvindar eru ríkjandi.
Barbados er eitt af þeim löndum þar sem lífskjör eru hvað best. Eyjan er vinsæll ferðamannastaður.
|