|
Article on other languages:
|
Heimskort sem sýnir staðsetningu Afríku
Afríka er heimsálfa. Hún afmarkast af Miðjarðarhafinu í norðri, Súesskurðinum (Súeseiðinu) í norðaustri, Indlandshafi í austri, Suður-Íshafinu í suðri og Atlantshafi í vestri. Afríka er önnur stærsta heimsálfa jarðar og sú þriðja eftir íbúafjölda. Hún er u.þ.b. 30.244.050 km² að flatarmáli (að meðtöldum eyjum) og þekur 20,3% af þurrlendi jarðar. Þar búa yfir 800 milljónir manna í 54 löndum, sem er sjöundi hluti alls mannfjölda heims.
NafnsifjarNafnið Afríka er komið frá Rómverjum sem notuðu heitið Africa terra (land Afri sem er fleirtala af Afer) fyrir norðurströnd álfunnar og skattlandið Afríku með höfuðborgina Karþagó, sem var þar sem nú er Túnis. Orðið Afer getur verið til komið af eftirfarandi ástæðum:
Sagnfræðingurinn Leó Afríkanus (1495–1554) taldi nafnið komið af gríska orðinu phrike (φρικε, sem merkir „kuldi og hrollur“) ásamt neitunarforskeytinu a- og merkti þannig land laust við kulda og hroll. En hljóðbreytingin úr ph í f hefur átt sér stað í kringum fyrstu öld, svo þetta getur því ekki verið uppruni nafnsins. Egyptaland var talið hluti Asíu af fornmönnum. Fyrstur til að telja það með Afríku var landafræðingurinn Ptólemeos (85–165) sem notaði Alexandríu sem núllbaug og gerði Súeseiðið að mörkum Asíu og Afríku. Eftir því sem Evrópumenn uppgötvuðu raunverulegt umfang álfunnar, óx inntak nafnsins með þeirri þekkingu. Landa- og jarðfræðiMörk Afríku eru Miðjarðarhafið í norðri, Súesskurðurinn í norð-austri, Indlandshaf og Rauðahaf í austri, Suður-Íshafið í suðri og Atlantshafið í vestri. Heimsálfan er um 8000 km löng frá norðri til suðurs (37°21'N til 34°51'15"S) og 7400 km breið frá vestri til austurs (17°33'22"W til 51°27'52"E). Nyrsti punktur álfunnar er Ras ben Sakka í Marokkó, syðsti punkturinn er Agulhashöfði í Suður-Afríku, vestasti punkturinn er Almadihöfði á Grænhöfðaeyjum og sá austasti er Raas Xaafuunhöfði í Sómalíu. Strandlengja Afríku er um 26000 km löng. Miðbaugur liggur í gegnum álfuna og mestur hluti hennar er því í hitabeltinu. Það er mikið um eyðimerkur og óbyggðir og þurrkar og úrhellisrigning gera búsetu á ýmsum svæðum erfiða. TungumálÍ Afríku eru töluð yfir þúsund tungumál. Í álfunni eru fjórar aðalættir tungumála.
Einnig eru töluð nokkur Evrópumál í Afríku, svo sem enska, franska og portúgalska, sem eru opinber tungumál margra Afríkuríkja. Lönd í Afríku
Questions for article: afrka heimslfan |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.
Mercedes Car
This site monitored by SitePinger.net