Samkvæmt annálum fundust fimm heimilismenn frá Gröf í Norður-Múlasýslu dauðir í bænum. Þeir voru allir sprungnir á kviði og líkin þrútin og uppþembd. Hjá þeim í baðstofu fannst silungur á diski. Segir í annálum að það hafi líklega verið öfuguggi, en hann var samkvæmt hjátrú baneitraðastur allra kvikinda.