1908 - TogarinnCoot, sem var fyrsti togari keyptur til Íslands, strandaði við Keilisnes. Coot var á leiðinni til Hafnarfjarðar, og hafði í togi skútuna Kópanes sem átti að fara í vetrarlægi í Hafnarfirði. Á utanverðum Hafnarfirði slitnaði tógið og festist í skrúfu Coots. Bæði skipin rak stjórnlaust undan veðri og straumi þar til þau strönduðu við Keilisnes. Þar með lauk sögu fyrsta togarans.