Árþúsund

del.icio.us del.icio.us
Digg Digg
Furl Furl
Reddit Reddit
Rojo Rojo
Add to OnlyWire

Árþúsund eða þúsöld (einnig kallað stóröld, aldatugur eða tíöld) er tímabil sem nær yfir 1000 ár .

Efnisyfirlit

Saga orðsins

Orðið árþúsund er ekki ýkja gamalt í íslensku, og talið að íslendingar hafi fengið það að láni úr dönsku (årtusind) um miðja 19. öld. Tveimur árum fyrir aldamótin 2000 hófst óopinber leit að íslensku orði sem gæti verið þýðing á enska orðinu millenium. Í greinaþætti Gísla Jónssonar, sem nefndist Íslenskt mál, og birtist Morgunblaðinu í mörg ár, komu fram orðin þúsöld, en einnig tíöld, aldatugur og stóröld. Helgi Hálfdánarson stakk upp á orðinu stóröld, og var Gísli hrifnastur af því orði af þeim sem fram höfðu komið. [1] En þúsöld virtist hafa vinningin, enda var það almennt notað. Orðið árþúsund er þó enn sem komið það orð sem flestir kannast við sem orð yfir þúsund ár.

Orðið þúsöld

Orðið þúsöld er mjög ungt í málinu, og fer í raun ekki að sjást á prenti fyrr en árið 1999, og þá sem þýðing á enska orðinu millenium. Forskeytið þús- eins og í þúsund, þýðir í raun eitthvað stórt, og er líklega skylt orðinu þjós = kjötflykki. Þannig merkir orðið þúsund: stóra hundraðið. Þúsöld þýðir því stóra öldin, þ.e.a.s. 1000 ár.

Tengt efni

Tímaeiningar

Tenglar

Wikiorðabók
Wikiorðabókin er með skilgreiningu tengda:

This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.


Giant Panda

Mercedes Car
James Bond Guide
This site monitored by SitePinger.net